![]() |
![]() |
|||
Verkefnin
UMÍS ehf. Environice veitir ráðgjöf um umhverfismál og sjálfbæra þróun. Starfsfólk fyrirtækisins er meðvitað um að sjaldnast sé til neitt eitt einfalt svar eða ein lausn sem hentar öllum. Lausnirnar eru heldur ekki endilega tæknilegar, heldur snúast þær miklu fremur um stjórnun, þekkingu og mannleg samskipti. Leitin að bestu lausnunum kallar á yfirsýn og skapandi hugsun, því að ekki er farsælt að leysa vandamál með sama hugarfari og bjó þau til.
Frá upphafi hefur þungamiðjan í starfsemi UMÍS ehf. Environice verið ráðgjöf til sveitarfélaga um gerð Staðardagskrár 21. Fyrirtækið hefur einnig unnið mikið á norrænum vettvangi. Við þetta bætist svo umhverfisráðgjöf af ýmsu tagi til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga. Þar má m.a. nefna mat á umhverfisáhrifum, gerð úrgangsáætlana, umhverfisfræðslu og ráðgjöf um umhverfisstjórnun.
Tenglarnir hér fyrir neðan vísa á nánari upplýsingar um nokkur viðfangsefni sem starfsfólk UMÍS ehf. Environice vinnur að eða hefur aðstoðað við á síðustu árum.
Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda (MÁU) Earth Check (áður Green Globe)
(Síðast uppfært 5. ágúst 2010)
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||